sunnudagur, maí 24, 2009

Sól og sæla í Danaveldi






































.


Hejsa,
Það er allt gott að frétta af okkur. Við erum búin að vera í fjögurra daga fríi, algjör lúxus. Við erum búin að vera svo heppin með veður að við höfum varla farið inn fyrir hússins dyr. Fríið fór í allskonar stúss fyrir heimilið, reyta arfa, slá, þvo glugga, kaupa og setja upp þvottasnúrur, bera á gras og tré og hér fyrir ofan má sjá afraksturinn. Flottur og fínn garður. Reyndar skemmtum við okkur líka í fríinu og fórum m.a í dýragarðinn með nesti og eyddum hálfum degi þar. Fórum í göngutúr í skóginum í Fraugde, elduðum góðan mat og spiluðum með Írisi og Bjössa Partý og co og drukkum ponsu rautt með.


Á mánudag byrjar alvara lífsins aftur, próflestur og verkefnavinna. Aðeins ein og hálf vika í fyrsta prófið mitt, ó mæ god :O) Alltaf svo stressandi þessi munnlegu próf. Ég klára 11 júní og er þá komin í langt og gott sumarfrí :O)


Ég reyndi að setja inn myndbönd af stelpunum en það gekk ekki þannig að ég setti inn nokkrar myndir í staðinn
Þar til síðar
Svansa pansa





4 Comments:

Anonymous Nafnlaus said...

Saaaaaaaakkknnniiiii sakn...
Við söknum ykkar ógeðslega viðbjóðslega hryllilega rosalega mikið:(
Þær verða alltaf sætari og sætari þessar litlu sætu dúllur.
Garðurinn er glæsilegur, við hlökkum til þess að setjast þangað og drekka rautt og kannski hvítt með ykkur í sumar:D
Kv. Mamma, Pabbi og Jóhanna

11:07 e.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Vá voða flottur garður! Miklu flottari en okkar :( Og rosalega er ísabella orðin stór! Gangi þér voða vel í prófunum svansa mín, og kærar kveðjur til Halla og stelpnanna. Lofa að blogga bráðlega ;)
Kv Helga

6:18 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Á ekki að setja inn einhverjar nýjar myndir bráðlega?

Kv Helga

7:20 f.h.

 
Anonymous Nafnlaus said...

Hvenær verðið þið í frí sassa mín? Á ég kannski að kíkja á ykkur?

Kv Helga

7:51 e.h.

 

Skrifa ummæli

<< Home